Mödduveldi
Hvolparnir hennar Nelly
15.05.2007 21:02:39 / madda

Ný síða

Jæja þá erum við að gera nýja síðu á betra bloggi slóðin er 123.is/madda

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 22:24:33 / madda

Gleðilegt ár

Gleðigjafa African Jewel  "Africa"


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 00:49:01 / madda

Nýjar myndir

Jæja er að setja inn nýjar myndir af krökkunum :D :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 23:39:29 / madda

Nýr meðlimur

Jæja þá erum við búin að fá nýjan meðlim, hann kom til landsins í gær og er alveg yndislegur hann heitir Grizzly og kemur frá vinkonu okkar í serbíu. hann er 2 ára Rottweiler strákur HD frír og ED frír.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 19:11:25 / madda

Demon og Lukas

Tveir sæti papillon guttar þeir Demon og Lukas eins og þeir hafa verið kallaðir eru að leita af framtíðarheimili. Demon er frábær karakter svartur hvítur með brúnar augabrýr og brúnt í kinnum Lukas er rosalega góður og smár hundur rauður og hvítur. Áhugasamir hafa samband við Möddu á e-maili madda@ishundar.is

Lukas og Fífi


Lukas, Fífí og Demon


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 20:02:10 / madda

allt í góðu

Af okkur stelpunum er gott að frétta, leyndamálið að upplýsast very soon :D og bara gaman. Það styttist óðum í sýningu og ætlar 2 skvísur að fara, bara Bella og stóri hlunkurinn hún penny. hinar verða að passa húsið. Hvolparnir hennar nelly eru orðnir svo stórir og fara í sprautu í vikuni, svo það fækkar þá á heimilinu, enda erum við frekar mörg með þessum krílum sem ganga hér berserskgang! lætinn uff... :D :D Dímon litli púki er sko prakkari frá... já hehe hann á sín móment. Eigum sko eftir að sakna þeirra. :cry: En fáum að sjá þá vonandi reglulega :) En já ætlaði að henda inn smá myndum


Prinsessan hún Queen BElla :D 8)


Busla og litli prinsinn hennar:)


Penny snúlla...:P


Nelly og börnin :D :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 20:12:13 / madda

Nýar myndir af sætu skvísunum okkar!

Penny Vargur, gerði tilraun til að grafa upp tré bjáninn minn! ekkert smá sæt stelpa!

´

Íslenski og Alþjóðlegi meistarinn minn Nelly prinsessa, kúra á bubuni á mömmu


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 17:31:27 / madda

Íshundasýning

Jæja góða fólk þá er sýningin búin og afresktur helgarinnar frábær! Nei við vorum ekki best in show eins og mætti halda en fengum allar 1 einkunn, Busla var 3 besta tík tegundar og Bella fékk íslenskt og alþjóðlegt meistara stig og var besti hundur tegundar, hún komst ekki í sæti í grúbbu en frábær árangur hjá prinsessuni okkar! Nellý Nelson var besti hundur tegundar og fékk íslenskt og alþjóðlegt stig og varð einnig meistari á sýninguni, ekkert smá flott. Hún lenti svo í 3 sæti í grúbbu. Frábær arangur hjá litlu dömunum. Penelopa fékk einnig 1 einkunn en 2 sæti og meistara efni. Og var dómarinn ekkert sma´stoltur af þessari tegund hér á landi! Frábær árangur og hlökkum til að fara á sýninguna í Júní!!!! n.k.!!!

Kvj. flottu Skvísurnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 21:54:46 / madda

Sýning

Jæja þá fer að koma að því. Við verðum á hundasýningu eftir viku ALLIR að koma og horfa á flottustu skvísurnar vonandi vinna ;) en sjáum til :D Penny verður sýnd á laugardeginum en við hinar á sunnudaginn ;)

Sýning Íshunda verðum um helgina 25 og 26 Mars. Við viljum fá þig svo endilega komdu og kíktu á okkur. 500 kr aðgangseyrir, kynningar frá Dýralandi og Pro pac og einnig á Purina hundafóðri og hundategundum. Sýningin hefst kl: 10:00 og stendur til 18.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 18:46:48 / madda

penný

Jæja þá eru smá fréttir sko, erum að fjölga og komin nýr fjölskyldumeðlimur. Hún heitir Penelopa og er af Rottweiler tegund. Hún er ekkert smá fjörug enda ekki nema að verða tveggja og ekkert smá gaman að hafa hana. Förum nú brátt að flytja svo það er allt að gerast verðum í okkar veldi brátt með risa garð og rosa fjör. Veit mar aldrei hvað skeður meira, eigum okkur leyndarmál sem má ekki segja frá strax. Ætlum allar á sýninguna og vonandi fáum við flotta dóma. Svo er risi í heimsókn eitt af barnabarninu mínu. Kerúb vantaði nætustað í nótt audda er alltaf pláss fyrir hann :D Jæja nóg í bili, bæææææ


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 14:07:04 / madda

Stittist í sýningu

Hæ allir saman. Nú stittist í sýningu og erum við sko orðin spent. Er að pæla í að mæta hress og mala þetta sko, hugsa stórt. Mamma segir að ég sé ógslega falleg, enda hefur hún vit á pommum, verð að segja þetta :) Ég er algjört merkikerti og heimtufrek. En reyndar er ég líka rosaleg dúlla og góð og alltaf kúrandi!! Lagar að kvetja alla á sýninguna. Systur mínar hafa það mjög gott og eru orðnar eikkað feitar og pattaralegar, þurfum að fara á dæet, hehe nei erum bara flottar. Mamma er að vona að Nelly klári meistarann núna í Mars svo þá fáum við kannski hvolpa á heimilið, rosalega verður það gaman. Busla keppir nú við mig í opnum flokki og er hún dúndur flott sko, enda systir mín, en sjáum hvað setur, hummm, stiðjum hor aðra. En bið að heilsa í bili. Bella skvísa og mig langar að bæta við, notið spjallir stelpur ekki þessa síðu, úff við höfum svo mikið að gera að við nennum ekki að hanga í tölvuni allan dagin, jæja er að skreppa út að pissa svo mútta komist í vinnuna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 18:59:55 / madda

long time

Jæja ágæta fólk við skvísurnar höfum það fínt, erum í nýju húsi á nýjum stað og líður rosalega vel. Nú er að koma sýning og fáum við skemmtilegan dómara hvet alla til að mæta! Langar rosalega að sjá ykkur öll á íshunda sýninguni! Mamma er að binda vonir sínar við Bellu líus, svo mikið yndi en við ætlaum líka að gera henni gera hana stolta, NElly stendur alltaf fyrir sínu og Buslan er svo ný, sjáum hvað dómararnir segja! Komið og kíkið á okkur sýningin er í mars (www.ishundar.is/ )  Takk fyrir innlitið og gleðileg nýtt ár !


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 21:06:46 / madda

Nýar myndir

Var að taka myndir af skvíunum Nelly og Bellu, vá þær eru sko módel svo rosalega sætastar :lol:  Stolltur eigandi sko 8)

texti yfir mynd texti yfir mynd


» 17 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 13:18:38 / madda

Hundasýning í gusti kópavogi 25 september!

Hæ hæ allir og takk fyrir innlitið á síðunni minni, hún er gasalega vinsæl enda erum við flottustu skvísurnar í bænum. Það er komin tími á smá innlegg, við vorum á hundasýningu núna á sunnudaginn hjá Íshundum og það var sko ekkert smá gaman. Buslan okkar var valin besti hvolpur Sýningar, ekkert smá montin af henni, bella var besti unghundur tegundar og sýndu 3 unghundar, hún er alltaf jafn flottust þessi elska okkar og svo aðal drottningin hún Nelly Nelson var besti hundur tegundar og í þriðja sæti í grúbbu. Við erum sko allar að halda heiðri hússins :o enda svakalega flottar og góðar stelpur. Busla er svoldið óþekk enda bara smábarn ennþá en henni er svo sem allt fyrirgefið. Svo var nottla toppurinn að hún frænka okkar Akíma var valin Besti hundur sýningar á þessari sýningu, hún er stóri dan og býr í keflavík. Til hamingju stóra frænka 8) En við reynum nú að skrifa fljótt aftur þegar allt er komið úr kössum og við komin fyrir á nýja staðnum. Bestu kveðjur Bella, Busla og Nelly Nelson! texti yfir mynd

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2005 22:14:10 / madda

500 heimsóknir

Jæja kæru vinir og aðrir gestir, nú erum við komin með  500 heimsóknir á síðuna okkar og alltaf bætist við :) Myndavélin er ekki alveg komin í gang enþá enda hefur verið svo mikið að gerast hjá okkur undanfarið. Við erum rosalega kátar stelpur og Bronko okkar er alltaf að dafna og fitna og lítur vel út. Hörku gaur. Hann er svona meiri töffari og stundum vill hann ekkert við okkur stelpurnar tala bara kúra hjá mömmu sinni. En ég birti bara upplýsingarnar um han um leið og myndirnar, leyfi þeim sem ekkert um hann vita vera pínu forvitin enþá :) og hin sem hafa ekki séð hann líka. Jæja nú erum við sko háttaðar í bæin okkar all sömul og biðjum að heilsa en erum mjög ánægðar með vinsældar síðunnar okkar. Stelpurnar og Bronko

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2